Fréttir
Landssamtök skógareigenda, Miðhúsum, 701 Egilsstöðum, Sími: 471 1365, Gsm: 860 2928, eiksf@mmedia.is



Haustferð skógarbænda
Félag skógareigenda á Suðurlandi býður félagsmönnum sínum til haustferðar
laugardaginn 4. september og er þess vænst að þeir bjóði með sér fjölskyldu og vinum.
Eitt aðal tilraunasvæði skógræktar á Suðurlandi, að Mosfelli, verður skoðað undir leiðsögn
Aðalsteins Sigurgeirssonar, forstöðumanns á Mógilsá og Böðvars Guðmundssonar,
áætlunarfulltrúa hjá Suðurlandsskógum. Einnig verður komið við á Reykjum og
Snæfoksstöðum.
Rúta fer frá skrifstofu Suðurlandsskóga, Austurvegi 1, kl. 11, hún mun verða við
Skeiðavegamót um kl. 11,15.
Ráðgert er að komið verði til baka til Selfoss um kl. 17.
Félag skógareigenda á Suðurlandi hefur í nokkur ár, skipulagt skoðunar- og skemmtiferð
á haustin, þar sem fræðst er um árangur skógræktar á völdum stöðum. Það er alltaf
áhugavert að skoða hvaða tegundir koma best út og bera saman skilyrði til ræktunar.
Einnig gefst tækifæri til að fræðast af sérfræðingunum sem verða með í ferðinni og
reynslan sýnir að margar spurningar vakna og alltaf er gott að bera saman bækur sínar.
Vonast er til að skógarbændur og áhugafólk um skógrækt fjölmenni í þessa ferð.
Jónsmessugangan, 23. júní.
Skógarbændur á Suðurlandi og gestir þeirra, hittust í góðu veðri á Kaldbak hjá Sigríði H.
Heiðmundsdóttur og Viðari H. Steinarssyni.
Skógræktin þeirra var skoðuð og ýmsum vandamálum velt fyrir sér og dáðst að góðum
árangri og mikilli elju og natni heimamanna.
Í fallegu rjóðri við húsið þeirra Sigríðar og Viðars, var síðan grillað og borðað og sungið
og soðið upp á ketilkaffinu sem var hreint afbragð, eins og alltaf.
Hópurinn, um 40 manns, skemmti sér vel á þessum fallega stað og eru þeim hjónum,
Sigríði og Viðari færðar bestu þakkir fyrir samveruna og móttökurnar, einnig Klöru, dóttur
þeirra, sem var bústýran þetta kvöld.
Með skógarkveðju,
María E. Ingvadóttir, formaður FsS
Kæru félagar í Félagi skógarbænda á Vesturlandi !
Nú líður að okkar árlega skógardegi en hann er á afmælisdegi félagsins þann 23. júní.
Nú munu þau Reynir og Björg á Svarfhóli taka á móti okkur kl.18.00 og sýna okkur
skógræktina sína.
Svarfhóll er í Svínadal 301 Akranes, best er að koma vestanað eftir Hvalfjarðarvegi (47)
og beygja inná Svínadalsveg (502) taka svo veginn til sem liggur að Hurðabaki og
Svarfhóli. Við jarðarmörk Svarfhóls munu Reynir og Björg taka á móti okkur og leiða
okkur áfram. Kort
Tökum með okkur góða skapið, njótum samverstundar í skóginum og sjáum hvað þau
Reynir og Björg hafa gert í sínum skógi. Meira
Jónsmessuganga FsS, miðvikudagskvöldið 23. júní kl. 20.00.
Að venju er skógarbændum á Suðurlandi og gestum þeirra boðið í Jónsmessugöngu. Nú
verður farið í Kaldbak á Rangárvöllum og hjónin Sigríður H. Heiðmundsdóttir og Viðar H.
Steinarsson heimsótt.
Skógræktarsvæði verða skoðuð og boðið upp á veitingar.
Ketilkaffi og skógarmannasöngur er auðvitað staðalbúnaður Jónsmessusamkomunnar.
Gaman væri að sjá sem flesta.
Hér með fylgir kort af leiðinni í Kaldbak.
Skógardagurinn Mikli 2010
Hinn árlegi Skógardagur verður haldinn að venju í Mörkinni í Hallormsstaðaskógi þar sem
allir eru velkomnir að njóta skemmtunar í skóginum.
Nú verður sú nýbreytni tekinn upp að hefja Skógardaginn mikla á föstudagskveldinu 25.
júní með því að sauðfjárbændur grilla lambakjöt ofan í gesti og gangandi kl. 20:00 í
Mörkinni.
Meira hér
Skógarhlaupið 2010
Skógardagurinn mikli þann 26. júní hefst með ræsingu í Skógarhlaupið sem er 14 km
hlaup í Hallormsstaðaskógi. Hlaupið byrjar í Trjásafninu skamt innan við byggðina,
skráning á staðnum og ræsing kl. 12:00. Hlaupið er á mjúkum skógarstígum í frábæru
umhverfi skógarins.
Meira hér
Kæru félagar í Félagi skógarbænda á Vesturlandi!
Aðalfundur okkar verður haldinn á Hótel Hamri í Borgarfirði fimmtudaginn 15. apríl kl. 18
Nánari dagskrá hér
Fundarboð – Dagskrá aðalfundur Félags skógarbænda á Suðurlandi
dagana 24. og 25. apríl 2010, í Keflavík.
Nánari dagskrá hér
Fagráðstefna skógræktar 2010
Þér er hér með boðið að taka þátt í Fagráðstefnu skógræktar 2010, sem haldin verður á
Hótel Stykkishólmi dagana 24.-26. mars, n.k.
Ráðstefnan er árleg - og hefð er fyrir því að hún flakkar réttsælis um landið og er alltaf
haldin á nýjum og nýjum stöðum. Að þessu sinni verður hún sem sagt í Stykkishólmi.
Skipuleggjendur eru:
• Vesturlandsskógar: Sigvaldi Ásgeirsson og Guðmundur Sigurðsson,
• Rannsóknastöð skógræktar á Mógilsá: Aðalsteinn Sigurgeirsson og
Ólafur Eggertsson,
• Skógræktarfélag Íslands: Brynjólfur Jónsson og Einar Gunnarsson,
• Landssamtök íslenskra skógareigenda: Björn B. Jónsson,
• Landbúnaðarháskóli Íslands: Bjarni D. Sigurðsson.
Ráðstefnan hefst með því, að ráðstefnugögn verða afhent kl. 18:00 til 20:00
miðvikudaginn 24. mars á Hótel Stykkishólmi. Við náðum góðum samningi við hótelið, svo
verð á mat og gistingu er afar hagstætt. Því hvetjum við alla, sem vettlingi geta valdið, til
að mæta strax á umræddum tíma á miðvikudeginum, ef þeir eiga heimangengt og nota
kvöldið til að rækta tengslin við aðra skógarmenn. Reiddur verður fram kvöldverður kl. 20:
00 á miðvikudagskvöldið. Dagskrá ráðstefnunnar hefst kl. 9:00 á fimmtudeginum, þannig
að eigi menn ekki um þeim mun skemmri veg að sækja, kemur sér vel að geta mætt
strax kvöldið áður. Sjá nánar Hér
Skráning á ráðstefnuna fer fram til 15. mars í tölvupóst gudmundur@vestskogar.is
eða í síma 433-7054 (Guðmundur Sigurðsson).
Aðalfundur LSE, verður haldinn í Reykholti í Borgarfirði 8.-10. október 2010.