Kæru félagar í Félagi skógarbænda á Vesturlandi.

Aðalfundur félagsins var haldinn á Hamri í Borgarfirði  8.mars  s.l.  Engar breytingar urðu
á stjórn félagsins og skoðunarmenn eru þeir sömu.

Á fundinn fengum við tvo gesti,  Þórunni Pétursdóttur, héraðsfulltrúa landgræðslunnar,  
sem flutti fróðlegt og skemmtilegt erindi um undirbúning lands til skógræktar.   Og Björn
B. Jónsson nýráðinn starfsmann  Landssamtaka skógareigenda.  Hann sagði okkur frá
helstu áherslum sem verða í þessu nýja starfi.  Það er mikið ánægjuefni að við höfum
loksins getað ráðið okkur starfsmann því hagsmunamál okkar skógarbænda eru mörg og
stór.

Fjárhagsleg staða félagsins er ágæt og á fundinum kom fram áhugi félagsmanna að
leggja fjármagn í fræðslumál.  Fundurinn samþykkti að styrkja félagsmenn sem fara á
aðalfund LSE á Hvolsvelli um 10.000 kr. Við hvetjum félagsmenn að skoða meðfylgjandi
auglýsingu vel og taka þátt í fundinum og fagráðstefnunni. Þeir félagsmenn sem sækja
fundinn geta svo sótt um styrkinn til Þórarins gjaldkera, hann verður á Hvolsvelli.

Á síðasta ári létum við endurgera félagsfána okkar.  Breytingin á fánanum er sú að búið
er að skerpa litina og samræma þá við aðra félagsfána og LSE fánann.      Fáninn er til
sölu fyrir félagsmenn og kostar 1.000 kr.   Áhugasamir geta haft samband við Bergþóru
formann í síma 434-1175.

Á síðasta starfsári héldum við upp á 10 ára afmælið okkar á Hreðavatni.  Fórum í
skógarferð um Borgarfjörð og í desember fórum við saman á jólahlaðborð.  Svona
samverustundir eru  eitt mikilvægasta hlutverk félagsins og eflir samheldni okkar.  Nú
förum við að huga að ferð sumarsins.  Ein hugmyndin er rósaferð á Suðurland.

Vonast til að sjá ykkur sem flest á Hvolsvelli í apríl og í félagsferð okkar í sumar.
                             Með bestu kveðju                                                                                   
        
                             Bergþóra Jónsdóttir, formaður FsV
Fréttir
Mynd: Tóti
Mynd: Tóti
Mynd: Tóti
Landssamtök skógareigenda,  Miðhúsum,  701 Egilsstöðum,  Sími: 471 1365,  Gsm: 860 2928,  eiksf@mmedia.is
Fréttabréf júní 2008

Skógardagur FsV

Mjög vel tókst að halda upp á 10 ára afmæli okkar á síðasta ári svo ákveðið er að  
afmælisdagurinn, 23. júní, verði árlegur skógardagur hjá FsV.     Þann 23. júní  í sumar kl
6. ætla Þórarinn og Hjördís á Tungufelli að bjóða okkur í skógræktina til sín.  Eina sem
þarf að hafa meðferðis er góða skapið og klæðnaður við hæfi.  Nú er bara að fylgjast með
dagatalinu.
Hvernig væri að auðga skóginn okkar með rósum?

Við blásum því til Rósaferðar þann 12. ágúst.    Stefnan er tekin til  Ólafs Njálssonar í
Nátthaga í Ölfusi hann ætlar að sýna okkur rósirnar sínar og fleira áhugavert í
gróðrarstöðinni.   Hugmyndin er að þetta verði 2ja daga ferð og við getum  einnig skoðað
skógrækt og hitt  skógarbændur á Suðurlandi.
Mynd: Tóti
Mynd: Tóti
Kæru félagar í FsV!

Nú líður að Rósaferðinni.  Við förum á þriðjudaginn 12. ágúst og
skoðum rósir í Nátthaga, förum í Haukadalsskóg og lítum svo á skógrækt
hjá skógarbændum. Grillum á Galtalæk hjá Sigurbjörgu og Nirði og
gistum í Brekkukoti.  Heimferð þann 13. ágúst.  FsV borgar rútu og kaupir ágrillið.
Félagsmenn borga gistingu ca. 4.000-5.000 kr. á mann og morgunmat 1.000kr.

Nánari dagskrá
hér

Ef einhver hefur gleymt að skrá sig eru síðustu forvöð að tilkynna sig.

kveðja

Bergþóra form. FsV
s:434-1175
Mynd: Tóti
Kæru félagar í Félagi skógarbænda á Vesturlandi!

Laugardaginn 29. nóvember ætlum við að skella okkur á jólahlaðborð á
Fossatúni.
Á Fossatúni eru skemmtiatrið og fjölbreyttur
matseðill sem kostar 5.600 kr.
á mann en 5.300 ef við verðum 20 eða fleiri.

Ég sendi ykkur matseðilinn og dagskrána og bið ykkur að kynna ykkur
skilmálana og tilkynna þátttöku sem fyrst á
hrutsstadir@simnet.is

Bestur kveður með von um góða þátttöku.

Bergþóra Jónsdóttir, form. FsV s: 434-1175
Mynd: steinsnar.is
Aðalfundur

Félag skógarbænda á Vesturlandi heldur aðalfund á Hótel Hamri í Borgarfirði
fimmtudaginn 26. mars kl. 18:00

Á fundinn mæta:

1. Bjarni Diðrik Sigurðsson, prófessor og brautarstjóri Skógfræði og landgræðslu  við
Landbúnaðarháskóla Íslands, flytur okkur erindi sem hann kallar
Lífríkið í skjóli skógarins: Hvaða breytingar verða þegar við ræktum skóga á mólendi ?

2. Sigurjón Einarsson, verkefnastjóri skipulagsmála í Borgarbyggð, fjallar um tillögu
að aðalskipulagi Borgarbyggðar 2008-2020 með áherslu á þau atriði sem snúa að
skógrækt.

3. Björn Jónsson  starfsmaður LSE, Landssamtaka skógareigenda, segir okkur hvaða
verkefni eru helst í gangi og framundan hjá skógarbændum.

4. Fulltrúi frá Vesturlandskógum  segir okkur frá stöðu verkefnisins og fyrirhugaðri
starfsemi sumarsins.

Venjuleg aðalfundarstörf, kjötsúpa og kaffi.

Nýir félagar velkomnir.

Mætum öll og eigum saman ánægjulega stund.

                                 Stjórn  FsV
Stjórn  FsV
Mynd:Vífill Búason
Kæru félagar í Félagi skógarbænda á Vesturlandi.

Aðalfundur félagsins var haldinn á Hamri fimmtudaginn 26. mars.  Engar breytingar urðu á
stjórn félagsins og skoðunarmenn eru þeir sömu.

Hér má sjá nokkrar myndir frá fundinum sem var vel heppnaður.
Kæru félagar í Félagi skógarbænda á Vesturlandi !

Gróðursetning er trúlega í fullum gangi hjá flestum ykkar.  Viðrað hefur vel undanfarið svo
vonandi hefur gróðursetning gengið vel.  Það er því tilvalið að líta aðeins upp því nú líður
að okkar árlega skógardegi en hann er á afmælisdegi félagsins þann 23. júní.  

Sjá nánar
hér
Fyrirlestur Bjarna Diðriks Sigurðssonar

Lífríkið í skjóli skógarins: Hvaða breytingar verða þegar við ræktum skóga á mólendi ?

Erindi flutt á Aðalfundi Félags skógarbænda á
Vesturlandi, Hótel Hamri í Borgarfirði
fimmtudaginn 26. mars kl. 18:30

Sjá
hér
Mynd: Tóti